Handbók fyrir ofurhetjur – 2. hluti: Rauða gríman

Ef mann dreymir nógu lengi um eitthvað sérstakt rætist draumurinn að lokum.Það er komin ný ofurhetja í bæinn. Börnin í skólanum hrífast af Rauðu grímunni sem flýgur um og tekst á við bófa. Þau hafa ekki hugmynd um að hún er Lísa bekkjarsystir þeirra, sem alltaf er strítt. Lísa hefur verið að æfa sig í ofurkröftum – en nú stendur hún frammi fyrir sínu erfiðasta verkefni. Hröð, spennandi og skemmtileg saga um stúlku sem grípur til sinna ráða.

104 bls.
Drápa
Elias Vahlund og Agnes Vahlund
Þýð.: Ingunn Snædal