Í þriðja sæti í yngri flokki Siljunnar 2018 varð hópur úr Vallaskóla á Selfossi sem gerði myndband um Dagbók Kidda klaufa – furðulegt ferðalag eftir Jeff Kinney. Höfundar myndbandsins eru: Júlía Katrín, Erla Margrét, Selma Lísa og Sigurlaug Sif. Dómnefndin sagði: „Leikgleðin í fyrirrúmi og vel unnið með mismunandi staðsetningar.“